Kríu hjólaverkstæðið eru staðsett við gömlu höfnina í Reykjavík, eða Granda. Við veitum alhliða viðgerðarþjónustu fyrir allar tegundir reiðhjóla og er gjaldið fyrir klukkutímann 4000 krónur. Gjald fyrir aukahluti reiknast ofan á það verð. Að auki bjóðum við uppá tvo frábæra viðgerða- og viðhaldspakka.
- Viðhaldsþjónusta 1 - 6000 krónur
-
þetta er almenn viðhaldsþjónusta til að tryggja örugga daglega virkni hjólsins og ætti að vera gerð á um þriggja mánuða fresti. Innifalið í pakkanum er:
- Hreinsun á stelli og gafli
- öxlar, felgur og dekk yfirfarin og slit kannað
- Hjól og teinar yfirfarin og rétt
- Headsett og sveitarlegusett yfirfarin og endurstillt
- Allir boltar yfirfarnir og hertir í rétta herslu
- Bremsur endurstilltar til að hámarka virkni
- Keðja hreinsuð og smurð
- Gírar endurstilltir fyrir rétta og hámarksvirkni
- Viðhaldsþjónusta 2 - 15000 krónur
-
þetta er yfirgripsmikil viðhaldsþjónusta sem framkvæma ætti á einu sinni á ári. Reiðhjólið er gjörsamlega strípað niður og sett saman aftur, en pakkinn innifelur jafnframt alla þætti og í viðhaldsþjónustu 1 ásamt:
- Stell hreinsað og skemmdir kannaðar og metnar ásamt því að athugað hvort stellið sé rétt/beint
- Skrúf fletir í stelli hreinsaðar
- Öxlar teknir í sundur, hreinsaðir, ástand þeirra kannað og þeir síðan settir aftur saman
- Festing stýris tekin af, hreinsuð og smurð (ef þörf er á), endurfest og hreyfing könnuð
- Allir aðrir hlutar reiðhjólsins teknir af, slit kannað hreinsað og endursmurt
- Ef þörf þykir eru ný handföng og barkar set sett á reiðhjólið




