upplýsingar
Um fyrirtækið:
Kríu hjól er ný hjólasmíðastofa og verkstæði staðsett við gömlu höfnina í Reykjavík. Við bjóðum uppá faglegar og alhliða hjólaviðgerðir fyrir allar tegundir hjóla og smíðum einstök reiðhjól eftir þínu höfði.
Kríu hjól einsetur sér að bjóða uppá reiðhjól, aukahluti og þjónustu sem hefur verið vandfundin í Reykjavík til þessa þess til stuðnings má sjá þau hjól sem fyrirtækið hefur unnið að og smíðað. Auk þess að smíða sérhönnuð reiðhjól úr nýjum hlutum, endurbyggjum við og gerum upp gömul hjól með notkun á þeim hlutum sem nýta má og betrumbæta í bland við nýja hluti. Til að kóróna slíka endursköpun er hjólið allt endursprautað í lit af þínu vali - til að setja þinn persónulega stimpil á reiðhjólið þitt.
Við vaðhyllumst einfaldleika og hreinleika, með eingíra hjólum eða notkun á innbyggðum öxulgírum. það er reynsla okkar af því að hjóla allt árið um kring við íslenskar aðstæður að það gerir lífið einfaldlega auðveldara, viðhaldið minna og heldur hjólinu hreinu og ganginum óaðfinnanlegum.
afgreiðsla:
Manudagur - Föstudagur kl 9:00 - 18:00
Laugardagur kl 11:00 -14:00 hrs
vetrarafgreiðsla:
Mán: kl.12:00 - 17:00
þri - Föst: kl.9:00 - 17:00
Laugardaga: eftir tímapöntunum
Kría er eina hjólaverslunin sem er á tveimur stöðum í Reykjavík. Nýja búðin/verkstæðið er að Ármúla 42 í miðbænum en upprunalega verslunin er á Hólmaslóð 2 í vesturbænum. Sjá kort hér að neðan fyrir nákvæma staðsetningu:






